Héraðsnefndir Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og vestra auglýsa starf verkefnastjóra Eldriborgararáðs laust til umsóknar frá og með 1. janúar 2024. Um er að ræða 50% starf sem felur í sér samskipti og þjónustu við starf eldri borgara í kirkjum prófastsdæmanna.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að veita faglega ráðgjöf og stuðning við starf eldri borgara.
- Að vinna náið með stjórn Eldriborgararáðs og standa fyrir sameiginlegum viðburðum Eldriborgararáðs.
- Að sinna afleysingaþjónustu fyrir starfsfólk í öldrunarstarfi safnaðanna.
- Að taka þátt í kirkjustarfi eldri borgara eftir því sem óskað er eftir og aðstoða varðandi dagskrá og efni sem nota má í starfið.
- Að sjá um almennt kynningarstarf og veita upplýsingar um starf kirkjunnar fyrir eldri borgara.
Menntun og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi eldri borgara í kirkjunni
- Reynsla af þátttöku í helgihaldi kirkjunnar
- Mjög góð samskiptahæfni og gott orðspor í samskiptum
- Reynsla og hæfni til að miðla upplýsingum
- Metnaður og færni í teymisvinnu
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti
Verkefnastjórinn lýtur verkstjórn prófastsins í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Nánari upplýsingar veita sr. Bryndís Malla Elídóttir prófastur í síma 892 2901, netfang bryndis.el@kirkjan.is og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur í síma 8609997, netfang helgasoffia@simnet.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2023
Umsóknum skal skila á skrifstofu Reykjavíkurprófastsdæmis eystra í Breiðholtskirkju eða á netfangið bryndis.el@kirkjan.is