Í vikunni hélt Biskup Íslands, frú Agnes Sigurðardóttir, áfram að vísitera Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Hún heimsótti Kópavogskirkju og blessaði kapelluna sem er staðsett í Borgum, safnaðarheimili kirkjunnar.
Á næsta sunnudag, 18. desember, verður hátíðarmessa í tilefni af 60 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Messan hefst klukkan 11 og á eftir verður móttaka í Borgum.