ELDRIBORGARARÁÐ REYKJAVÍKURPRÓFASTSDÆMA
BREIÐHOLTSKIRKJU V/ ÞANGBAKKA
109 REYKJAVÍK.
NÁMSKEIÐ Í FRAMSÖGN OG TJÁNINGU
LEIÐBEINANDI ER LEIKKONAN SOFFÍA JAKOBSDÓTTIR
Eldriborgararáð býður til námskeiðs í framsögn og tjáningu. Námskeiðið er ætlað fulltrúum í Eldriborgararáði, starfsmönnum kirknanna (vígðum sem óvígðum) og messuþjónum, ásamt öllum þeim sjálfboðaliðum sem starfa í kirkjum Reykjavíkurprófastsdæmanna. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Námskeiðið verður haldið í Digraneskirkju miðvikudaginn 19. október frá kl. 17:00 – 20:00
Dagskrá námskeiðsins er sem hér segir:
- Þátttakendur boðnir velkomnir.
- Fyrirlestur um framsögn og tjáningu.
- Verkleg kennsla í formi upplesturs og æfinga.
- Stutt helgistund í kirkju þar sem þátttakendur námskeiðsins spreyta sig á upplestri.
- Léttur kvöldverður í boði ER. NAUÐSYNLEGT ER AÐ SKRÁ SIG TIL ÞÁTTTÖKU Á eldriborgararad@kirkjan.is EÐA Í SÍMUM 567-4810 / 666-9891. SKRÁNINGU LÝKUR MÁNUDAGINN 17. OKTÓBER.
Soffía Jakobsdóttir er menntuð leikkona og hefur áratuga reynslu í kennslu framsagnar og tjáningar. Í námskeiðslok ættum við að vera hæfari til að tjá okkur, hvort sem það er í formi predikunar úr predikunarstól eða að tjá okkur á litlum fundum.
Vinsamlega láttu sjálfboðaliðana í þinni kirkju vita af fundinum.
Hlökkum til að sjá ykkur,
F.h. stórnar ER
Þórey Dögg Jónsdóttir.