Á morgun hefst predikunarklúbbur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra í Hjallakirkju. Samveran hefst kl. 9.15 og eftir erindi héraðsprests eru umræður um texta komandi sunnudags. Í vetur verður auk ritskýringar lögð áhersla á guðfræði guðsþjónustunnar. Boðið verður upp á nýmalað kaffi frá Kaffitár.