Gæti starfsfólk þitt bjargað lífi?
Þegar slys og alvarleg veikindi verða á vinnustað er það oftast nær samstarfsfólk sem kemur fyrst að.
Þess vegna verður haldið skyndihjálparnámskeið fimmtudaginn 7. Febrúar í Borgum, safnaðarheimili Kársnessóknar. Námskeiðið hefst kl. 18 og tekur 4 tíma. Gert er ráð fyrir léttum veitingum á staðnum.
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra greiðir námskeiðið.
Skráning á profaust@centrum.is og í síma 567 4810.