Reykjavíkurprófastsdæmi eystra 2017-18
Inngangsorð
Þegar við komum saman til þessa 28. héraðsfundar Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og lítum um öxl yfir liðið starfsár þá blasir við tíunda árið í röð þar sem við höfum þurft að glíma við afleiðingar niðurskurðar sóknargjaldsins og þau margvíslegu vandamál sem honum fylgja. Víða hefur samt verið vel unnið og af miklum fúsleika, dugnaði og fórnfýsi, þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður og oft lítil efni. Vil ég því enn og aftur fá að nota þetta tækifæri til að þakka það dugmikla og fórnfúsa starf, sem ég hef orðið vitni að í heimsóknum mínum í söfnuði prófasts-dæmisins. Og í þessu sambandi vil ég minna okkur öll á hinn stórkostlega fagnaðarboðskap sem fólginn er í eftirfarandi boðskap Jesaja spámanns:
„Sjá, Guð er hjálp mín,
ég er öruggur og óttast ekki.
Því að Drottinn er vörn mín og lofsöngur,
hann kom mér til hjálpar.
Þér munuð með fögnuði vatni ausa
úr lindum hjálpræðisins.
Á þeim degi munuð þér segja:
Lofið Drottin, ákallið nafn hans.
Gerið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna.
Hafið í minnum að háleitt er nafn hans.
Lofsyngið Drottni því að dásemdarverk hefur hann gert,
þau verða þekkt um alla jörð.
Fagnið og gleðjist, þér sem búið á Síon,
því að Hinn heilagi Ísraels er mikill á meðal yðar.“ (Jes. 12:2-5)
Látum þessi orð spámannsins vera okkur til uppörfunar og hvatningar þegar við höldum til móts við nýtt starfsár og göngum fram í þeirri fullvissu, að hann sé vörn okkar og komi okkur til hjálpar þannig að við megum vatni ausa úr lindum hjálpræðisins. Það er gott að eiga fyrirheiti hans og vita það, að hann gleymir okkur ekki og yfirgefur ekki kirkju sína á hverju sem gengur. Við skulum því enn á ný ákalla nafn hans og biðja hann að styrkja okkur til þjónustunnar, efla samstarf okkar og samstöðu, og auka okkur fúsleika og djörfung til eftirfylgdar við hann á komandi starfsári.
Ég mun nú í þessari skýrslu leitast við, að nefna það helsta, sem gerst hefur í starfi prófastsdæmisins á síðasta starfsári, um leið og horft er til þess sem framundan bíður.
Starfið í söfnuðunum
Ekki er að þessu sinni hægt að birta helstu tölur um helgihald og athafnir í prófastsdæminu árið 2017, skv. starfsskýrslum presta, eins og gert hefur verið í þessari skýrslu undanfarna áratugi. Ástæðan er sú að unnið hefur verið að breytingum og uppfærslum á tölvukerfi biskupsstofu. Hefur sú vinna dregist úr hömlu þannig að prestarnir hafa ekki getað sent inn skýrslur á réttum tíma og vantar því enn töluvert af skýrslum fyrir sl. ár.
Þar sem þannig hafa ekki náðst fram nauðsynlegar breytingar á starfs- og messu-gjörðarskýrslum presta í þá veru að þær gefi gleggri mynd af umfangi kirkjustarfsins höfum við því haldið áfram þeirri reglubundnu talningu á völdum þáttum starfsins í prófasts-dæminu sem við tókum upp fyrir níu árum og verður henni haldið áfram þar til endurbætur hafa verið gerðar á messugjörðarskýrslunum. Samkvæmt þessari talningu tóku alls 208.405 (206.008) manns þátt í þeim liðum safnaðarstarfsins sem talið var í árið 2017 og er þar þó ýmislegt undanskilið, eins og t.d. kórastarfið, fermingarfræðslan og fundir og samverur af ýmsu tagi. Er hér um að ræða u.þ.b. 1,2% fjölgun frá síðasta ári. Meðalþátttakan í messum, sem fram fóru á árinu 2017 var 88,3 manns, en var 90,9 árið áður.
Samstarf innan hinna þriggja samstarfssvæða í prófastsdæminu var að mestu með svipuðu sniði og áður. Ég tel það eitt mikilvægasta verkefnið innan prófastsdæmisins, að við leggjum aukna áherslu á samstarfssvæðin á komandi árum og leitum allra leiða til að efla starf kirkjunnar í prófastsdæminu með margvíslegu samstarfi og verkaskiptingu, þegar það á við. Eins og undanfarin ár gerir héraðsnefndin tillögu um, að á fjárhagsáætlun næsta árs verði sérstök fjárveiting til samstarfssvæðanna og er hún að þessu sinni 1.550.000 kr.
Lítið sem ekkert hefur verið um byggingarframkvæmdir á starfsárinu, enda hefur viðhald eða endurbætur á húsnæði safnaðanna því miður verið í algjöru lágmarki mörg undanfarin ár. Ekki hefur tekist að hefja framkvæmdir við viðbyggingu safnaðarheimilis Árbæjarkirkju þótt samþykktar teikningar hafi legið fyrir árum saman. Þó hefur loks fengist framlag úr jöfnunarsjóði til að hefja undirbúning að þessum framkvæmdum og er nú verið að endurskoða teikningar. Byrjað var á viðgerðum á þaki Breiðholtskirkju sumarið 2014, en vegna fjárskorts hafa þær í raun stöðvast. Nokkrar viðgerðir hafa átt sér stað á Kópavogskirkju, en þar er viðhaldsþörfin orðin mjög brýn, bæði á rafkerfi, gluggum og vegna lekaskemmda og verður þeim framkvæmdum fram haldið á komandi sumri og verður þá m.a. unnið að virðgerð á gluggum á suðurhlið kirkjunnar. Loks má nefna að nú er unnið að uppsetningu á orgeli í Guðríðarkirkju.
Ráðstefnur, námskeið, fræðslustarf o.fl.
Að venju var boðið upp á ýmiskonar fræðslustarf á vegum prófastsdæmisins á liðnu starfsári og skal það helsta talið upp hér:
Prédikunarklúbbur presta hefur komið saman vikulega yfir vetrartímann undir leiðsögn dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, héraðsprests. Þá sá dr. Sigurjón einnig um vikulega biblíulestra í Breiðholtskirkju. Stóðu þeir samtals yfir í 20 vikur. Einnig hefur dr. Sigurjón Árni boðið upp á ýmsar fræðslusamverur eins og t.d. fræðslunámskeið fyrir sóknarnefndir og heimsóknir í félagsstarf aldraðra.
Fermingarnámskeið voru í Vatnaskógi á vegum flestra safnaðanna í samvinnu við Skógarmenn KFUM. Er þar bæði um að ræða dags námskeið auk hefðbundinna námskeiða með einnar nætur gistingu.
Þá hefur fræðslunefnd prófastsdæmisins reynt að miðla upplýsingum milli safnaðanna um þau margvíslegu námskeið sem þar eru haldin og einnig hafa verið námskeið í samstarfi við nágrannaprófastsdæmin. Má þar t.d. nefna námskeið fyrir kirkjuverði og aðra starfsmenn safnaðanna og námskeið fyrir sóknarnefndarfólk. Fræðslunefndina skipa þau sr. Bryndís Malla Elídóttir, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Þá skal á það minnt, að söfnuðunum standa jafnan til boða eldvarnarnámskeið, framsagnarnámskeið og námskeið í skyndihjálp á vegum prófastsdæmisins og eru þau einkum ætluð starfsfólki og sjálfboðaliðum safnaðanna.
Fundir, aðrar samverur o.fl.
Héraðsfundur var síðast haldinn í Lindakirkju 23. maí 2017 og aukahéraðsfundur í Breiðholtskirkju 26. október. Héraðsnefnd prófastsdæmisins, hefur að jafnaði haldið einn fund á mánuði og voru þeir alls 11 á starfsárinu. Að auki héldu héraðsnefndirnar í eystra og vestra prófastsdæminu einn sameiginlegan fund. Í héraðsnefnd sitja nú sr. Gunnar Sigurjónsson og Benedikta G. Waage, en varamenn þeirra eru sr. Guðrún Karls Helgudóttir og Guðrún Hulda Birgis. Það skal tekið fram að bæði aðal- og varamenn eru boðaðir á alla fundi. Þá eiga prófastarnir í Reykjavíkurprófastsdæmunum og Kjalarnes-prófastsdæmi reglulega með sér fundi þar sem við ræðum sameiginleg málefni prófasts-dæmanna.
Samráðsfundir presta og djákna voru þrír á starfsárinu og sömuleiðs voru haldnir þrír formannafundir og var einn þeirra sólarhringsfundur í Skálholti.
Auk þeirra funda sem hér hafa verið nefndir, hefur prófastur setið margvíslega fundi um málefni ÆSKR, Eldriborgararáðs, Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, Kirkjugarða Reykjavíkur og Kirkjugarðasambands Íslands, svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur prófastur einnig átt starfsgæða-viðtöl með prestum og djáknum prófastdæmisins og setið samráðsfundi með prestum, sóknarnefndum og starfsfólki sóknanna, biskupi Íslands, öðrum próföstum, félagsmála-yfirvöldum o.fl., auk margvíslegra nefndarstarfa. Á þessu vori hefur prófastur svo vísiterað átta af tíu sóknum prófastsdæmisins og munu tveir síðustu söfnuðurnir verða vísiteraðir á komandi hausti. Þá stjórnaði prófastur kjörnefndarstörfum á þremur stöðum, þ.e. í Linda-, Hjalla- og Dómkirkjuprestaköllum.
Þess skal einnig getið, að biskup Íslands heldur árlega prófastafund, sem að þessu sinni var um miðjan janúar. Gefst þar gott tækifæri til að ræða ýmis málefni, sem varða starf kirkjunnar og prófastsdæmanna. Kom þar m.a. fram, að biskup hyggst vísitera Reykjavíkur-prófastsdæmi eystra í byrjun árs 2019.
Einnig hefur Prófastafélagið haldið haustfundi þar sem prófastar hafa ásamt biskupi skoðað ýmis sameiginleg mál er varða skipulag, nýjungar í starfi o.fl. Að þessu sinni var fundurinn haldinn í Skálholti.
Þá stóð prófastsdæmið sl. haust fyrir kynningarfundi með frambjóðendum í kjöri til vígslubiskups í Skálholti og árshátíð fyrir presta, djákna, starfsmenn prófastsdæmisins og sóknarnefndarformenn var haldin 6. apríl sl.
Breytingar á starfsliði
Allnokkrar breytingar hafa orðið í hópi presta og djákna í prestaköllum prófastsdæmisins á starfsárinu:
Þann 1. nóvember 2017 var Dís Gylfadóttir skipuð prestur í Lindaprestakalli og var hún vígð 10. nóvember. Þann 1. desember 2017 lét sr. Sigfús Kristjánsson af störfum sem sóknarprestur í Hjallaprestakalli og var sr. Sigurður Kr. Sigurðsson settur í tímabundna afleysingarþjónustu í hans stað, en þann 15. janúar var sr. Sunna Dóra Möller síðan skipuð sóknarpresturprestur í Hjallasókn. Prófasturinn, sr. Gísli Jónasson, sem hafði verið í leyfi frá sóknarprestsstarfi í Breiðholtsprestakalli frá 1. október 2015, lét endanlega af því starfi 31. desember en var um leið skipaður héraðsprestur frá 1. janúar. Er þessi breyting hugsuð til þess, að gefa prófasti betra tækifæri til að sinna prófastsþjónustunni, sem stöðugt hefur verið að aukast í þessu fjölmennasta prófastsdæmi landsins. Frá sama tíma var sr. Magnús Björn Björnsson settur sóknarprestur í Breiðholtsprestakalli til eins árs og lét sr. Þórhallur Heimisson, sem gengt hafði þessari afleysingu í tvö ár, þá jafnframt af störfum. 15 febrúar var sr. Bára Friðriksdóttir sett sem prestur í Digranesprestakalli í fjarveru sr. Magnúsar Björns.
Loks skal þess getið að sr. Karl V. Matthíasson hefur verið í árs leyfi frá sl. hausti og hefur sr. Leifur Ragnar Jónsson verið settur ttil að leysa hann af til 1. júlí. Sömuleiðis hefur sr. Bryndís Malla Elídóttir verið í námsleyfi frá áramótum og leysti sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson hana af um tíma, en síðan hefur sr. Ólafur Borgþórsson gengt starfi hennar í aukaþjónustu.
Þjónandi djáknar í prófasdæminu eru nú fjórir, auk framkvæmdastjóra Ellimálaráðs, en voru þegar best lét 7. Þjónandi prestar eru hins vegar 22 í 21,5 stöðugildi, en fjölgar væntanlega í 23 í 22,5 stöðugildum þegar annar presturinn í Grafarholtssókn verður skipaður frá 1. júlí nk. Flestir voru prestarnir í prófastsdæminu skömmu fyrir hrun er þeir voru að jafnaði 23-24. Það er því ljóst að enn höfum við varla náð sama þjónustustigi og þá var. Er það mikið áhyggjuefni hversu seint sækist að ná þeim embættum til baka sem horfið hafa á braut og því full ástæða til þess að við höldum vöku okkar í þeim efnum.
Sameiginlegt starf Reykjavíkurprófastsdæma o.fl.
Megin verkefni Eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma (ER) hefur alla tíð verið að hvetja til og styðja við kirkjustarf eldri borgara í söfnuðunum. Er það m.a. gert með margvíslegum námskeiðum og samráðsfundum fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða safnaðanna, og með því að skipuleggja og sjá um ýmiskonar sameiginlega viðburði fyrir þennan aldurshóp. Þá hefur ráðið staðið fyrir sumardvöl fyrir aldraða á Löngumýri í samráði við Ellimálanefnd kirkjunnar. Hefur aðsókn stöðugt verið að aukast og eru yfirleitt biðlistar í dvalarhópanna þótt þeim hafi á undanförnum árum verið fjölgað úr þremur í sex og eru þess jafnvel dæmi, að fólk hafi fundið sér gistingu annarsstaðar í Skagafirði til þess að geta notið þeirrar dagskrár sem boðið er upp á á Löngumýri yfir daginn. Virðist því ljóst að móta þurfi stefnu til framtíðar varðandi þetta starf og hafa prófastsdæmin skipað starfshóp til að skoða þau mál. Framkvæmdastjóri Eldriborgararáðs er Þórey Dögg Jónsdóttir, djákni.
Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum (ÆSKR) býður sömuleiðis upp á fjölbreytt starf bæði fyrir leiðtoga og unglinga í æskulýðsfélögum safnaðanna og sömuleiðis í TTT starfinu. Starfið hefur um margt verið til fyrirmyndar og hefur borið margvíslegan ávöxt eins og best sést á þerri staðreynd, að ÆSKR hefur smám saman verið falin umsjón með ýmsum verkefnum og þjónustu í æskulýðsmála kirkjunnar, sem áður var á hendi annarra aðila og þá oft í samvinnu við ÆSKÞ. Er sambandið þannig t.d. mikilvægur framkvæmdaaðili að starfi Farskóla leiðtogaefna, sem starfaði með nokkuð breytti sniði í vetur og útskrifaði 15 ungmenni við hátíðlega athöfn í Grensáskirkju 11. apríl sl. Framkvæmdastjóri ÆSKR er Kristján Ágúst Kjartansson.
Starfsemi Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma er bæði viðamikil og fjölþætt eins og glögglega kemur fram í árskýrslu garðanna. Má þar m.a. nefna, að nú er unnið að undirbúningi að uppbygginu nýs kirkjugarðs við Úlfarsfell. Það hefur þó skapað starfseminni mikinn vanda, að niðurskurður lögbundinna framlaga til kirkjugarða á undan-förnum árum hefur leitt til þess að þurft hefur að grípa til verulegra aðhaldsaðgerða sem m.a. hafa leitt til fækkunar starfsfólks, frestunar á brýnum viðhaldsverkefnun og skertrar þjónustu. Prófastarnir í Reykjavíkurprófastsdæmunum sitja fundi framkvæmdanefndar kirkjugarðanna sitt hvort árið og hefur undirritaður setið þessa fundi á s.l.starfsári.
Starfsemi Fjölskylduþjónustu kirkjunnar hefur heldur dregist saman á síðustu misserum vegna niðurskurðar á tekjum kirkjunnar. Prófastsdæmið hefur frá upphafi stutt þetta starf með verulegum fjárframlögum. Héraðsnefnd telur nauðsynlegt að þessum stuðningi verði haldið áfram, enda um ákaflega mikilvæga þjónustu kirkjunnar að ræða. Er því lagt til að stuðningur héraðssjóðs við Fjölskylduþjónustuna á næsta ári verði með hliðstæðum hætti og verið hefur.
Þá vil ég geta þess, að prófastsdæmið hefur styrkt starf Hjálparstarfs kirkjunnar með allmiklum framlögum, eins og fram kemur í ársreikningi, enda hefur lítið dregið úr umsóknum um aðstoð.
Að lokum vil ég svo undir þessum lið geta þess, að sr. Toshiki Toma, prestur innflytjenda, hefur síðustu árin haft fasta starfsaðstöðu í prófastsdæminu. Skrifstofa hans hefur verið í Hjallakirkju, en nú er stefnt að því að hún færist í Breiðholtskirkju, enda hefur hann að undanförnu haft reglulega viðtalstíma, helgihald og annað starf þar. Hafa sr. Toshiki og sóknarnefnd Breiðholtskirkju undirritað sérstaka viljayfirlýsingu um aukið samstarf og aukna aðstöðu í Breiðholtskirkju og hefur það verið kynnt og samþykkt af biskupi Íslands. Er þar m.a. gert ráð fyrir að þróuð verði kirkjuleg þjónusta fyrir flóttafólk á höfuðborgarsvæðinu og einnig fyrir innflytjendur í Breiðholti og nágrenni þess. Er það von mín að með sameigin-legu átaki okkar í prófastsdæminu megi okkur takast að efla og styrkja þetta mikilvæga starf, sem þegar er að verða einn helsti vaxtarbroddurinn í starfi þjóðkirkjunnar.
Einnig vil ég nefna hér, að Reykjavíkurprófastsdæmin hafa til margra ára staðið fyrir sameiginlegri messuþjónahátíð að vori og þannig viljað láta í ljós örlítinn þakklætisvott fyrir trúfasta þjónustu messuþjónanna. Sömuleiðis má nefna að prófastsdæminn standa sameigin-lega að áðurnefndum námskeiðum fyrir fermingarbörn í Vatnaskógi.
Sjóðir, samskipti við Reykjavíkurborg o.fl.
Stjórn Starfssjóðs safnaðarhjálparinnar í Reykjavíkurprófastsdæmum kom saman á fund í síðustu viku og var þar tekin ákvörðun um að úthluta aðeins einum styrk til sumar-dvalar aldraðra á Löngumýri, enda hafa tekjur sjóðsins dregist mjög saman í kjölfar banka-hrunsins.
Samkvæmt ákvörðun kirkjuráðs um úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna árið 2018 koma 47 milljónir kr. í hlut fimm sókna í prófastsdæminu, en árið áður fengu sex sóknir alls 38 milljónir kr. Er því um nokkra aukningu að ræða milli ára og þá sérstaklega vegna viðgerða á Kópavogskirkju. Þá var ákvörðun um hugsanlegt framlag til Árbæjarsóknar frestað þar til niðurstaða fæst í viðræðum um hugsanlega breytingu á verkefninu. Ég vek athygli á því, að umsóknir um styrki úr Jöfnunarsjóði og öðrum sjóðum kirkjunnar vegna ársins 2018 þurfa að hafa borist biskupsstofu í síðasta lagi 15. júní n.k.
Ekki er lengur auglýst eftir umsóknum í Kirkjubyggingarsjóð Reykjavíkur enda hafa borgaryfirvöld í raun lagt sjóðinn af.
Samstarfsnefnd Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurprófastsdæma hefur ekki komið saman á þessu kjörtímabili, enda hafa borgaryfirvöld lítinn áhuga haft á slíku samráði.
Fjárhagur sókna- og prófastsdæmis
Því miður hafa ekki enn borist neinar áreiðanlegar fréttir af því að í vændum sé leiðrétting, sem um munar, á þeirri gríðarlegu skerðingu sóknargjaldsins sem viðgengist hefur frá árinu 2009. Og það jafnt fyrir það, þótt það hafi verið viðurkennt af stjórnvöldum, að sóknargjaldið hafi verið skorið niður langt umfram þann niðurskurð, sem aðrir aðilar hafa almennt mátt þola vegna efnahagshrunsins. Hefur þessi skerðing leitt til þess að sóknargjaldið er nú kr. 931 kr. á mánuði fyrir hvern gjaldanda, en ætti skv. lögunum að vera 1556 kr., eða 625 kr. hærra á mánuði. Það munar vissulega um minna.
Þessi skerðing hefur haft verulega neikvæð áhrif á starf safnaðanna, prófastsdæmisins og kirkjunnar allrar og er nú svo komið, að ákveðnir söfnuðir virðast endanlega vera að komast í þrot fjárhagslega og enn fleiri eru um þessar mundir að segja upp starfsfólki, lækka starfshlutfall og draga úr starfi. Með fundargögnum fylgir yfirlit, sem ég hef tekið saman, um niðurskurðinn eins og hann hefur verið í hverjum söfnuði prófastsdæmisins fyrir sig. Kemur þar fram, að heildarniðurskurðurinn í okkar prófastsdæmi frá árinu 2008 til og með ársins í ár nemur nú um 2,34 milljarði króna eða að meðaltali u.þ.b. 212 milljónum kr. á hverju ári. Og heildarniðurskurðurinn til allra safnaða Þjóðkirkjunnar er nú orðinn rúmlega 8,83 milljarðar. Það er því ákaflega brýnt, að viðræður við ríkisvaldið, um fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju, verði til lykta leiddar sem allra fyrst og það á jákvæðan hátt fyrir kirkju og kristni í þessu landi.
Sameining sókna
Á síðasta sumri hófust viðræður milli sóknarnefnda Breiðholtssóknar og Fella- og Hólasóknar um aukið samstarf eða jafnvel sameiningu sóknanna. Hafa þær viðræður gengið hægt m.a. vegna þessa að lengi var beðið eftir úttekt á viðgerðakosnaði kirkjuhúsanna, sem Kirkjuráð samþykkti að gerð yrði til undirbúnings viðræðna. Sýnist því ljóst, að ekki fæst nein niðurstaða úr þessum viðræðum fyrr en í fyrsta lagi á næsta vetri og eru það mikil vonbrigði.
Kirkjuþing
Á síðasta kirkjuþingi voru m.a. samþykktar nokkrar breytingar á starfsreglum um val og veitingar prestsembætta. Ýmis nýmæli er að finna í þessum starfsreglum og er þar helst að nefna, að nú eru störf svokallaðar matsnefndar ekki lengu valkvæð heldur skylda. Þá var einnig samþykkt að nú skuli á hverjum aðalsafnaðarfundi séð til þess að kjörnefndir séu fullmannaðar þótt þær séu í grunninn kjörnar til fjögurra ára.
Á þessu vori var svo kosið til nýs kirkjuþings og komu í tengslum við það fram verulegir ágallar á framkvæmd kosningarinnar og þá sérstaklega varðandi kynningu frambjóðenda, enda var kjörsókn leikmanna mjög dræm.
Niðurlagsorð
Ég læt svo þessari skýrslu vera lokið með því að færa öllum þeim, sem komið hafa að starfinu í prófastsdæminu á sl. starfsári, innilegar þakkir. Það verður aldrei fullþakkað, hversu mörg þau eru, sem eru fús að leggja hönd að verki og gefa bæði af tíma sínum og kröftum til þjónustunnar í prófastsdæminu. Einnig vil ég fá að þakka góðum Guði, sem hefur blessað starfið svo ríkulega á liðnum árum þrátt fyrir hið ytra mótlæti sem við höfum átt við að stríða. Leggjum starfið allt í hans hendur. Hann vill styrkja okkur og leiða, því megum við treysta og það er náð hans og kærleiki sem öllu breytir og gefur okkur þann styrk og kraft, sem við þurfum á að halda til að starfa og þjóna í kirkju hans.
Gert í Reykjavík 25. maí 2018.
Gísli Jónasson, prófastur.