Námskeið fyrir kirkjuverði, staðarhaldara, framkvæmdarstjóra og annað starfsfólk kirkjunnar
Að veita framúrskarandi þjónustu Föstudaginn, 19. janúar kl. 8:30-11:00. Eyþór Eðvarðsson frá Þekkingarmiðluninni ehf. Staðsetning: Hliði, Álftanesi
Góð þjónusta er flókið fyrirbæri sem byggir á samspili margra þátta þ.m.t. skipulagi, vinnulagi, samskiptum og stjórnun. Væntingar viðskiptavina eru hluti af árangrinum ásamt því viðhorfi sem birtist í hegðun þeirra sem veita þjónustuna. Allir eru að veita þjónustu þó fáir viti hvað hún nákvæmlega er. Í þessari snörpu vinnustofur verður farið í þjónustufræðin og umræður um hvað það er sem gerir góða þjónustu.
Þjónusta í garði Guðs Föstudaginn 16. febrúar kl. 8.30-11:00 Snjólaug Ólafsdóttir frá Andrými-ráðgjöf ehf. Staðsetning: Breiðholtskirkja.
Hvernig getum við minnkað umhverfisspor kirkjunnar og stuðlað að samfélagslegri ábyrgð? Farið verður yfir umhverfismál heimsins og stefnur varðandi lágmörkun umhverfisáhrifa. Unnið verður í tengslum við nýsamþykkta umhverfisstefnu Þjóðkirkjunnar og skoðað hvar söfnuðir geta látið sig bera niður á þessum vettvangi.
Þjónusta í kirkju Krists Föstudaginn 2. febrúar kl. 8:30-11:00 Helga Soffía Konráðsdóttir, prófastur Staðsetning: Háteigskirkja.
Kirkjuverðir eru andlit kirkjunnar á hverjum stað og mæta fólki í margvíslegum aðstæðum, í gleði, sorg og öllu þar á milli. Við ræðum þær áskoranir sem í því felast. Hvaða kröfur eru gerðar við þjónustu í kirkjunni, í helgu rými við mismunandi athafnir kirkjunnar?
Hægt er að skrá sig á einstakar samverur og tekið er við skráningum á netfangið: eva.valdimarsdottir@gmail.com
Að námskeiðinu standa Kjalarnessprófastsdæmi, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.