Reykjavíkurprófastsdæmi eystra 2016-17
Inngangsorð
Þegar við komum saman til þessa 27. héraðsfundar Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og lítum um öxl yfir liðið starfsár þá blasir við níunda árið í röð þar sem við höfum þurft að glíma við afleiðingar niðurskurðar sóknargjaldsins og þau margvíslegu vandamál sem honum fylgja. Þykir því mörgum vafalaust sem meira enn nóg sé komið af þessum aðhalds- og þrengingartímum og vissulega er það von mín og trú, að nú sé botninum náð og að við getum senn, með Guðs hjálp, snúið vörn í sókn. Það hefur verið lærdómsríkt og uppörfandi að fylgjast með viðbrögðum safnaðanna og kirkjufólksins við þessu ástandi. Víða hefur verið vel unnið og af miklum fúsleika, dugnaði og fórnfýsi, þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður og oft lítil efni. Vil ég því enn og aftur fá að nota þetta tækifæri til að þakka það dugmikla og fórnfúsa starf, sem ég hef svo víða orðið vitni að í heimsóknum mínum í söfnuði prófastsdæmisins. Og í þessu sambandi vil ég minna okkur öll á hinn stórkostlega fagnaðarboðskap sem fólginn er í eftirfarandi boðskap Jesaja spámanns:
„Lofsyngið himnar, fagna þú jörð,
þér fjöll, hefjið gleðisöng
því að Drottinn hughreystir þjóð sína
og sýnir miskunn sínum þjáðu.
En Síon segir: „Drottinn hefur yfirgefið mig,
Guð hefur gleymt mér.“
Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu
að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu?
Og þó að þær gætu gleymt
þá gleymi ég þér samt ekki.
Ég hef rist þig í lófa mér.“ (Jes. 49:13-16a)
Látum þessi orð spámannsins vera okkur til uppörfunar og hvatningar þegar við höldum til móts við nýtt starfsár og göngum fram í þeirri fullvissu, að sé Drottinn með þá geti þrátt fyrir allt ekkert sigrað okkur né gert okkur viðskila við kærleika hans. Það er gott að eiga fyrirheiti hans og vita það, að hann gleymir okkur ekki og yfirgefur ekki kirkju sína á hverju sem gengur. Við skulum því enn á ný fela honum allt okkar ráð og biðja hann að styrkja okkur til þjónustunnar, efla samstarf okkar og samstöðu, og auka okkur fúsleika og djörfung til eftirfylgdar við hann á komandi starfsári.
Ég mun nú í þessari skýrslu leitast við, að nefna það helsta, sem gerst hefur í starfi prófastsdæmisins á síðasta starfsári, um leið og horft er til þess sem framundan bíður.
Starfið í söfnuðunum
Helstu tölur um helgihald í prófastsdæminu árið 2016, skv. starfsskýrslum presta, eru sem hér segir, (tölur frá árinu 2015 eru í sviga): Almennar guðsþjónustur 621 (611), barnaguðþjónustur 461 (373), aðrar bæna- og helgistundir 985 (1065). Guðsþjónustur voru því samtals 2067 (2049). Viðstaddir þessar guðsþjónustur voru alls 100.394 (105.760). Fermingarbörn voru 892 (1030) og altarisgestir 19.891 (24.326). Þá voru skírð 775 (712) börn, hjónavígslur voru 218 (172) og útfarir 436 (396).
Þar sem enn hefur engu verið breytt varðandi starfs- og messugjörðarskýrslur presta í þá veru að þær gefi gleggri mynd af umfangi kirkjustarfsins höfum við haldið áfram þeirri reglubundnu talningu á völdum þáttum starfsins í prófastsdæminu sem við tókum upp fyrir átta árum og verður henni haldið áfram þar til endurbætur hafa verið gerðar á messugjörðar-skýrslunum. Samkvæmt þessari talningu tóku alls 206.008 (213.415) manns þátt í þeim liðum safnaðarstarfsins sem talið var í árið 2016 og er þar þó ýmislegt undanskilið, eins og t.d. kórastarfið, fermingarfræðslan og fundir og samverur af ýmsu tagi. Er hér um að ræða u.þ.b. 3,5% fækkun frá síðasta ári. Meðalþátttakan í messum, sem fram fóru á árinu 2016 var 90,9 manns, en var 94,6 árið áður.
Samstarf innan hinna þriggja samstarfssvæða í prófastsdæminu var að mestu með svipuðu sniði og áður, en hefur þó samt heldur verið að aukast. Ég tel það mikilvægt, að við leggjum áframhaldandi áherslu á samstarfssvæðin á komandi árum og leitum allra leiða til að efla starf kirkjunnar í prófastsdæminu með margvíslegu samstarfi og verkaskiptingu, þegar það á við. Eins og undanfarin ár gerir héraðsnefndin því tillögu um, að á fjárhagsáætlun næsta árs verði sérstök fjárveiting til samstarfssvæðanna og er hún að þessu sinni 1.500.000 kr.
Lítið sem ekkert hefur verið um byggingarframkvæmdir á starfsárinu, enda hefur viðhald eða endurbætur á húsnæði safnaðanna því miður verið í algjöru lágmarki mörg undanfarin ár. Ekki hefur tekist að hefja framkvæmdir við viðbyggingu safnaðarheimilis Árbæjarkirkju þótt samþykktar teikningar hafi legið fyrir árum saman. En nú virðist þó loks vera að rofa til í þeim efnum þar sem söfnuðurinn fékk loksins, á yfirstandandi ári, framlag úr jöfnunarsjóði til að hefja undirbúning að þessum framkvæmdum. Byrjað var á viðgerðum á þaki Breiðholtskirkju sumarið 2014, en vegna fjárskorts hafa þær í raun stöðvast. Nokkrar viðgerðir hafa átt sér stað á Kópavogskirkju, en þar er viðhaldsþörfin orðin mjög brýn, bæði á rafkerfi, gluggum og vegna lekaskemmda og verður þeim framkvæmdum fram haldið á komandi sumri eftir því sem fjámunir leyfa. Þá var á starfsárinu áfram unnið að frágangi á kirkjuskipi Lindakirkju.
Ráðstefnur, námskeið, fræðslustarf o.fl.
Að venju var boðið upp á ýmiskonar fræðslustarf á vegum prófastsdæmisins á liðnu starfsári og skal það helsta talið upp hér:
Prédikunarklúbbur presta hefur komið saman vikulega yfir vetrartímann undir leiðsögn dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, héraðsprests. Þá sá dr. Sigurjón einnig um vikulega biblíulestra í Breiðholtskirkju. Stóðu þeir samtals yfir í 20 vikur. Einnig hefur dr. Sigurjón Árni boðið upp á ýmsar fræðslusamverur eins og t.d. fræðslunámskeið fyrir sóknarnefndir og heimsóknir í félagsstarf aldraðra.
Fermingarnámskeið voru í Vatnaskógi á vegum flestra safnaðanna í samvinnu við Skógarmenn KFUM. Er þar bæði um að ræða dags námskeið auk hefðbundinna námskeiða með einnar nætur gistingu.
Þá hefur fræðslunefnd prófastsdæmisins staðið fyrir nokkrum námskeiðum og sömuleiðis reynt að miðla upplýsingum milli safnaðanna um þau margvíslegu námskeið sem þar eru haldin og hefur það gefið góða raun. Fræðslunefndina skipa þau sr. Bryndís Malla Elídóttir, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Þá skal á það minnt, að söfnuðunum standa jafnan til boða eldvarnarnámskeið, framsagnarnámskeið og námskeið í skyndihjálp á vegum prófastsdæmisins og eru þau einkum ætluð starfsfólki og sjálfboðaliðum safnaðanna.
Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, stóð að venju fyrir nokkrum fræðslufundum fyrir syrgjendur í samvinnu við prófastsdæmin, Kirkjugarða Reykjavíkur-prófastsdæma og Fræðsludeild Biskupsstofu.
Fundir, aðrar samverur o.fl.
Héraðsfundur var síðast haldinn í Fella- og Hólakirkju 25. maí 2016 og aukahéraðsfundur í Breiðholtskirkju 20. október. Héraðsnefnd prófastsdæmisins, hefur að jafnaði haldið einn fund á mánuði og voru þeir alls 11 á starfsárinu. Að auki héldu héraðsnefndirnar í eystra og vestra prófastsdæminu einn sameiginlegan fund. Í héraðsnefnd sitja nú sr. Gunnar Sigurjónsson og Benedikta G. Waage, en varamenn þeirra eru sr. Guðrún Karls Helgudóttir og Guðrún Hulda Birgis. Það skal tekið fram að bæði aðal- og varamenn eru boðaðir á alla fundi. Þá eiga prófastarnir í Reykjavíkurprófastsdæmunum og Kjalarnesprófastsdæmi reglulega með sér fundi þar sem við ræðum sameiginleg málefni prófastsdæmanna og er það von mín að samstarf prófastsdæmanna megi halda áfram að aukast og styrkjast á næstu misserum.
Samráðsfundir presta og djákna voru þrír á starfsárinu og sömuleiðs voru haldnir þrír formannafundir og var einn þeirra sólarhringsfundur í Skálholti.
Auk þeirra funda sem hér hafa verið nefndir, hefur prófastur setið margvíslega fundi um málefni ÆSKR, Eldriborgararáðs, Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, Kirkjugarða Reykjavíkur og Kirkjugarðasambands Íslands, svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur prófastur einnig setið samráðs-fundi með prestum, sóknarnefndum og starfsfólki sóknanna, biskupi Íslands, öðrum próföstum, félagsmálayfirvöldum o.fl., auk margvíslegra nefndarstarfa. Á þessu vori hefur prófastur svo átt starfsgæðaviðtöl með prestum og djáknum prófastdæmisins.
Þess skal einnig getið, að biskup Íslands heldur árlega prófastafund, sem að þessu sinni var í seinni hluta janúar. Gefst þar gott tækifæri til að ræða ýmis málefni, sem varða starf kirkjunnar og prófastsdæmanna. Sömuleiðis hefur Prófastafélagið haldið haustfundi þar sem prófastar hafa ásamt biskupi skoðað ýmis sameiginleg mál er varða skipulag, nýjungar í starfi o.fl. Að þessu sinni var fundurinn haldinn að Hótel Bifröst.
Breytingar á starfsliði
Allnokkrar breytingar hafa orðið í hópi presta og djákna í prestaköllum prófastsdæmisins á starfsárinu:
Þann 1. september 2016 lét sr. Svavar Stefánsson af störfum sem sóknarprestur í Fella-prestakalli og var sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson settur til afleysingarþjónustu í hans stað. 1. nóvember 2016 var dr. Grétar Halldór Gunnarsson skipaður prestur í Grafarvogs-prestakalli og vígður til starfsins þann 20. nóvember. Þann 1. febrúar var Karen Lind Ólafsdóttir skipuð prestur í hálfu starfi í Hjallasókn og vígð 26. febrúar. Lét sr. Kristín Pálsdóttir, sem sett hafði verið sem prestur til afleysingar í pretstakallinu, þá jafnframt af störfum. Þann 1. apríl sl. var sr. Jón Ómar Gunnarsson, sem áður starfaði sem prestur við Glerárkirkju á Akureyri, skipaður sem prestur í hinu nýju Fella- og Hólasprestakalli. Lét sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson þá jafnframt af störfum sem afleysingaprestur. Loks skal þess getið, að prófasturinn, sr. Gísli Jónasson, hefur verið í leyfi frá sóknarprestsstarfi í Breiðholtsprestakalli frá 1. október 2015, en í staðinn verið settur til að gegna þeirri stöðu héraðsprests, sem losnaði er sr. Bryndís Malla Elídóttir tók við núverandi prestsþjónustu sinni í Seljaprestakalli. Frá sama tíma var sr. Þórhallur Heimisson settur sóknarprestur í Breiðholtsprestakalli, upphaflega til 31. júlí 2016 og síðan til 1. ágúst 2017, en nú hefur verið ákveðið, að þjónusta hans verði framlengd enn um sinn, og er þetta fyrirkomulag m.a. hugsað til þess, að gefa prófasti betra tækifæri til að sinna prófastsþjónustunni, sem stöðugt hefur verið að aukast í þessu fjölmennasta prófastsdæmi landsins.
Þjónandi djáknar í prófasdæminu eru nú fimm, auk framkvæmdastjóra Ellimálaráðs, en voru þegar best lét 7. Þjónandi prestar eru hins vegar 22 í 21,5 stöðugildi, en fjölgar væntanlega í 23 í 22,5 stöðugildum þegar þriðji presturinn í Lindasókn verður skipaður, en það starf verður senn auglýst, en þessi prestur verður að hálfu safnaðarráðinn. Flestir voru prestarnir í prófastsdæminu skömmu fyrir hrun er þeir voru að jafnaði 23-24. Það er því ljóst að enn höfum við varla náð sama þjónustustigi og þá var. Er það mikið áhyggjuefni hversu seint sækist að ná þeim embættum til baka sem horfið hafa á braut og því full ástæða til þess að við höldum vöku okkar í þeim efnum.
Sameiginlegt starf Reykjavíkurprófastsdæma o.fl.
Megin verkefni Eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma hefur alla tíð verið að hvetja til og styðja við kirkjustarf eldri borgara í söfnuðunum. Er það m.a. gert með margvíslegum námskeiðum og samráðsfundum fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða safnaðanna, og með því að skipuleggja og sjá um ýmiskonar sameiginlega viðburði fyrir þennan aldurshóp. Þá hefur ráðið staðið fyrir sumardvöl fyrir aldraða á Löngumýri í samráði við Ellimálanefnd kirkjunnar. Hefur aðsókn stöðugt verið að aukast og eru yfirleitt biðlistar í dvalarhópana þótt þeim hafi á undanförnum árum verið fjölgað úr þremur í fimm og eru þess jafnvel dæmi, að fólk hafi fundið sér gistingu annarsstaðar í Skagafirði til þess að geta notið þeirrar dagskrár sem boðið er upp á á Löngumýri yfir daginn. Framkvæmdastjóri ráðsins er Þórey Dögg Jónsdóttir, djákni.
ÆSKR býður sömuleiðis upp á fjölbreytt starf bæði fyrir leiðtoga og unglinga í æskulýðsfélögum safnaðanna. Starfið hefur um margt verið til fyrirmyndar og hefur borið margvíslegan ávöxt eins og best sést á þerri staðreynd, að ÆSKR hefur smám saman verið falin umsjón með ýmsum verkefnum og þjónustu í æskulýðsmála kirkjunnar, sem áður var á hendi annarra aðila. Er sambandið þannig t.d. mikilvægur framkvæmdaaðili að starfi Farskóla leiðtogaefna, sem gekk mjög vel í vetur og útskrifaði 27 ungmenni við hátíðlega athöfn í neskirkju í mars sl. Framkvæmdastjóri ÆSKR er Kristján Ágúst Kjartansson.
Starfsemi Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma er bæði viðamikil og fjölþætt eins og glögglega kemur fram í árskýrslu garðanna. Má þar m.a. nefna, að nú er hafinn undirbúningur að uppbygginu nýs kirkjugarðs við Úlfarsfell. Það hefur þó skapað starfseminni töluverðan vanda, að niðurskurður lögbundinna framlaga til kirkjugarða á undanförnum árum hefur leitt til verulegs hallareksturs og er nú svo komið að stjórn garðanna sér sig tilneydda að skoða þann valkost í fullri alvöru, að loka Fossvogskapellu og líkhúsinu þar um næstu áramót ef ekki fást aukin framlög til rekstrarins. Er þetta auðvitað mjög alvarleg staða og með öllu óviðunandi. Prófastarnir í Reykjavíkur-prófastsdæmunum sitja fundi framkvæmdanefndar kirkjugarðanna sitt hvort árið og mun undirritaður sitja þessa fundi á komandi starfsári.
Starfsemi Fjölskylduþjónustu kirkjunnar hefur heldur dregist saman á síðustu misserum vegna niðurskurðar. Prófastsdæmið hefur frá upphafi stutt þetta starf með verulegum fjárframlögum. Héraðsnefnd telur nauðsynlegt að þessum stuðningi verði haldið áfram, enda um ákaflega mikilvæga þjónustu kirkjunnar að ræða. Er því lagt til að stuðningur héraðssjóðs við Fjölskylduþjónustuna verði heldur aukinn á næsta ári.
Þá vil ég geta þess, að prófastsdæmið hefur styrkt starf Hjálparstarfs kirkjunnar með allmiklum framlögum, eins og fram kemur í ársreikningi, enda heldur umsóknum um aðstoð Hjálparstarfsins áfram að fjölga og þá ekki hvað síst úr okkar prófastsdæmi.
Að lokum vil ég svo undir þessum lið geta þess, að sr. Toshiki Toma, prestur innflytjenda, hefur fasta starfsaðstöðu í prófastsdæminu. Skrifstofa hans er í Hjallakirkju og er hann með reglulega viðtalstíma og helgistundir þar. Einnig er hann með viðtalstíma í Breiðholtskirkju og auk þess mánaðarlega messu á ensku og er nú að því stefnt að auka starfið þar. Er það von mín að með sameiginlegu átaki okkar í prófastsdæminu megi okkur takast að efla og styrkja þetta mikilvæga starf.
Sjóðir, samskipti við Reykjavíkurborg o.fl.
Stjórn Starfssjóðs safnaðarhjálparinnar í Reykjavíkurprófastsdæmum hefur, þegar þetta er ritað, ekki enn komið saman til að taka ákvörðun um úthlutun styrkja á þessu ári, en á síðasta ári var aðeins úthlutað einum styrk til sumardvalar aldraðra á Löngumýri, enda hafa tekjur sjóðsins dregist mjög saman í kjölfar bankahrunsins.
Samkvæmt ákvörðun kirkjuráðs um úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna árið 2017 koma 38 milljónir kr. í hlut sex sókna í prófastsdæminu, en árið áður fengu fimm sóknir alls 18 milljónir kr. Er því um verulega aukningu að ræða milla ára. Ég vek athygli á því, að umsóknir um styrki úr Jöfnunarsjóði og öðrum sjóðum kirkjunnar vegna ársins 2018 þurfa að hafa borist biskupsstofu í síðasta lagi 15. júní n.k.
Ekki er lengur auglýst eftir umsóknum í Kirkjubyggingarsjóð Reykjavíkur enda hafa borgaryfirvöld í raun lagt sjóðinn af. Áttum við prófastarnir fund með borgarstjóra vegna þessa máls á síðasta ári, en það breytti því miður engu um þessa niðurstöðu.
Samstarfsnefnd Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurprófastsdæma hefur verið ekki komið saman það sem af er þessu kjörtímabili og hlýtur það að verða ósk okkar að svo verði, bæði til að ræða málefni Kirkjubyggingarsjóðs og eins til að skoða hugsanlegar lagfæringar á reglum um samskipti skóla og trúar- og lífsskoðunarfélaga, sem samþykktar voru í Borgarráði haustið 2010 og túlkun skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur á þeim.
Fjárhagur sókna- og prófastsdæmis
Því miður hafa ekki enn borist neinar fréttir af því að í vændum sé leiðrétting, sem um munar, á þeirri gríðarlegu skerðingu sóknargjaldsins sem viðgengist hefur frá árinu 2009. Og það jafnt fyrir það, þótt það hafi verið viðurkennt af stjórnvöldum, að sóknargjaldið hafi verið skorið niður langt umfram þann niðurskurð, sem aðrir aðilar hafa almennt mátt þola vegna efnahagshrunsins. Þessi skerðing hefur haft verulega neikvæð áhrif á starf safnaðanna, prófastsdæmisins og kirkjunnar allrar og er nú svo komið, að ákveðnir söfnuðir virðast endanlega vera að komast í þrot fjárhagslega. Með fundargögnum fylgir yfirlit, sem ég hef tekið saman, um niðurskurðinn eins og hann hefur verið í hverjum söfnuði prófastsdæmisins fyrir sig. Kemur þar fram, að heildarniðurskurðurinn í okkar prófastsdæmi frá árinu 2009 til og með ársins í ár nemur nú u.þ.b. 1,55 milljarði króna eða að meðaltali u.þ.b. 171 milljón kr. á hverju ári. Og heildarniðurskurðurinn til allra safnaða Þjóðkirkjunnar er nú rúmlega 5,85 milljarðar. Það er því ákaflega brýnt, að viðræður við ríkisvaldið, um fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju, verði til lykta leiddar sem allra fyrst og það á jákvæðan hátt fyrir kirkju og kristni í þessu landi. Munum við fjalla nánar um þessi mál á fundinum hér á eftir að lokinni framsögu Einars Karls Haraldssonar.
Sameining sókna
Á kirkjuþingi 2016 var samþykkt tillaga um sameiningu Fella- og Hólabrekkusókna í nýja sókn, Fella- og Hólasókn, og átti hún sér stað 30. nóvember sl. Jafnframt varð til nýtt prestakall, Fella- og Hólaprestakall, sem þjónað verður af tveimur prestum og er sr. Guðmundur Karl Ágústsson, sóknarprestur hins nýja prestakalls. Einnig er þess að geta, að eftir að ljóst varð að ekki reyndist áhugi til að að kanna í alvöru hugmyndir um sameiningu Breiðholts- og Seljasókna þá hefur sóknarnefnd Breiðholtssóknar óskað eftir viðræðum við sóknarnefnd Fella- og Hólasóknar um hugsanlega sameiningu Breiðholtssóknar við hina nýju sókn. Var sú beiðni tekin fyrir á nýafstöðnum aðalsafnaðarfundi Fella- og Hólasóknar og var þar samþykkt að hefja slíkar viðræður.
Kirkjuþing
Á síðasta kirkjuþingi voru samþykktar nýjar starfsreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa. Ýmis nýmæli er að finna í þessum starfsreglum og vil ég þá fyrst nefna það, að nú hefur hver sá vígður maður sem kosningarréttar nýtur rétt á að tilnefna allt að þrjá einstaklinga sem uppfylla skilyrði til kjörs biskups Íslands. Þeir þrír einstaklingar sem flestar tilnefningar fá eru síðan í kjöri til biskups Íslands eða vígslubiskups. Kosningarétt í biskupskjöri hafa síðan allir þjónandi prestar og djáknar íslensku þjóðkirkjunnar, kjörmenn prestakalla, sbr. starfsreglur um val og veitingu prestsembætta, ásamt þeim leikmönnum sem sæti eiga í kirkjuráði og á kirkjuþingi. Vil ég því minna á, að þar sem kjör á nýjum vígslubiskupi í Skálholti stendur fyrir dyrum á komandi hausti, þá er því mjög brýnt að kjörnefndir allra prestakalli séu fullmannaðar á þessu vori.
Niðurlagsorð
Ég læt svo þessari skýrslu vera lokið með því að færa öllum þeim, sem komið hafa að starfinu í prófastsdæminu á sl. starfsári, innilegar þakkir. Það er ómetanlegt og verður raunar aldrei fullþakkað, hversu mörg þau eru, sem eru fús að leggja hönd að verki og gefa bæði af tíma sínum og kröftum til þjónustunnar á Guðsríkisakrinum. Og síðast, en ekki síst, vil ég svo fá að þakka góðum Guði, sem hefur blessað starfið svo ríkulega á liðnum árum þrátt fyrir hið ytra mótlæti sem við höfum átt við að stríða. Það er náð hans og kærleiki sem öllu breytir. Hann vill styrkja okkur og leiða, því megum við treysta. Mætti það því verða gæfa okkar, að hleypa honum að í lífi okkar, að hann komist þar að með blessun sína og handleiðslu og fái gefið okkur þann styrk og kraft, sem við þurfum á að halda til að starfa og þjóna í kirkju hans.
Gert í Reykjavík 12. maí 2017.
Gísli Jónasson, prófastur.