Héraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra verður haldinn í Lindakirkju þriðjudaginn 23. maí 2017.
Fundurinn hefst kl. 17:30 og gert er ráð fyrir að honum ljúki kl. 21.
Á héraðsfundi eiga að mæta:
- þjónandi prestar í prófastsdæminu
- tveir sóknarnefndarmenn, formaður og safnaðarfulltrúi, ef hann er til staðar, eða varamenn þeirra
- djáknar, starfandi í prófastsdæminu
- kirkjuþingsmenn prófastsdæmisins
- fulltrúar prófastsdæmisins á leikmannastefnu.
Í starfsreglum um héraðsfundi segir svo:
Starfsmönnum sókna og prófastsdæmis svo og öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt.