Sálmar fyrr og nú
fræðslusamverur í Seljakirkju í febrúar kl. 13
boðið er upp á súpu og brauð kl. 12:30
Sálmar Lúthers – 12. febrúar
Dr. María Ágústsdóttir mun fjalla um sálma Lúthers og hvaða erindi þeir eiga í nýrri sálmabók sem gefin verður út á þessu ári. Í ár er 500 ára afmælis siðbótarinnar minnst í kirkjunni og hvaða áhrif Lúther og þar með sálmar hans hafa haft á kirkju og kristni.
Trúmaðurinn Bob Dylan – 19. febrúar
Nóbelsverðlaunahafinn Bob Dylan orti mörg lög með trúarlegri skýrskotun sem nutu mikilla vinsælda. Henning Emil Magnússon mun fjalla um Dylan á trúartímabilinu 1979-1981 og trúarhugmyndir hans. Einnig mun Bylgja Dís Gunnarsdótti syngja lög eftir Corlioni við ljóð Dylans.
Áhrifasaga Saltarans – 26. febrúar
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson mun fjalla um áhrifasögu Davíðssálmanna og varpa upp fjölbreyttum myndum þar sem sjá má áhrif frá kunnum sálmum Biblíunnar. Í myndlist, ljóðum og kvikmyndum birtast oft tilvísanir í Biblíuna sem gaman er að taka eftir.
Njótum þess að fræðast í febrúar og eiga samfélag í kirkjunni í hádeginu á sunnudögum!