Mánudaginn 31.október n.k verður haldið málþing í safnaðarheimili Háteigskirkju kl.15.30 – 18.30 undir yfirskriftinni Lúthersk arfleifð í nútíma samfélagi.
Fjögur erindi verða flutt á málþinginu:
- Egill Arnarson heimspekingur: Kreppa kennivalds í samtímanum.
- Sólveig Anna Bóasdóttir prófessor í guðfræðilegri siðfræði við HÍ: “Köllun mannsins í syndugum heimi. Orðræða Lútherska heimssambandsins um loftslagsmál í aðdraganda Parísarráðstefnunnar (COP21) 2015”.
- Haraldur Hreinsson guðfræðingur: Er nútíminn lútherskur? „Simul iustus et peccator“ og hversdagsmenningin.
- Kristín Ástgeirsdóttirsagnfræðingur og framkvæmdastýra Jafnréttisstofu: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu.“ Konur, kvennabaráttan og siðbótin.
Þetta er fimmta málþingið sem Nefnd um fimm alda minningu siðbótarinnar stendur fyrir.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson stýrir umræðum.
Verið hjartanlega velkomin.